Vinkona mín - og lesblinda

Ég var að spjalla við vinkonu mína um Ideas-Shared og hún var ekki alveg viss hvort hún gæti notað þessa síðu því hún hefði engar hugmyndir.
En hvað með vandamál spurði ég; nei í raun ekki” svarði hún. Ubs… ekki góð byrjun það fyrir mig.
Ég gafst ekki upp og tók við að útskýra hvað síðan gæti verið notuð fyrir, atriði sem kannski koma ekki strax upp í huga fólks. Margir halda að hugmyndirnar þurfi að vera viðskiptalegs eðlis og að setja inn vandamál sé spurning um að fá svar við einni spurningu, en svo er alls ekki málið.

Hvað ef þú ert með langveikt barn, hvað ef þér finnst þú vera einangruð og allur tími þinn fer í að sjá um barnið og þú hefur ekki tíma til að leita þér hjálpar. Þetta er hlutskipti margra og þeir eru ekki neitt að væla yfir því en væri ekki hægt að nota samskiptaformið betur til að auðvelda hlutina þó ekki væri nema að litlu leyti?  Væri ekki gott að vera í sambandi við aðra sem eru svipuðum aðstæðm og vita hvaða vandamál þeir eru að fast við?  Veist þú hvar bestu hjálpina er að finna, hvað virkar og hvað ekki.  Það geta verið  vandamál með skólann, pössun, keyrslu milli staða og margt, margt annað. Þessir hlutir geta svo breyst nánast frá degi til dags og þess vegna er gott að hafa aðgang nýjustu upplýsingum sem aðrir í svipuðum aðstæðum hafa. Það er nú líka einu sinni þannig að oft á tíðum talar fólk meira saman í gegnum netið en endilega á förnum vegi. Svona hópa er auðvelt nota til að vinna saman, hjálpast að og skipuleggja sig.

“Já þú meinar það”, sagði vinkona mín.
 Upp úr þessu kom svo ljós að barnið hennar er með lesblindu.  Það var vandamál í skólanum og henni fannst skólinn ekki sýna þessu nægjan áhuga. Hún vissi að það voru allavega 4 önnur börn í bekk barnsins hennar með lesblindu en hún var ekki í neinu sambandi við þá foreldra. Ef það eru fimm börn í þessum bekk hvað eru þá margir lesblindir krakkar í öllum skólanum? Líður þeirra foreldrum eins og ef svo er væri ekki auðveldara að bera saman bækur sínar og tala við skólayfirvöld saman?
Afhverju ekki að setja upp hóp til að vinna saman og deila upplýsingum! Það er oft erfitt að halda fundi sem allir geta mætt á á sama tíma en í svona hóp geta menn rætt málin og sett inn upplýsingar þegar þeim hentar.  Fljótlega spyrst orðið út og fleirri og fleirri foreldrar skrá sig og taka þátt í umræðunni og láta hlutina gerast. Inn í hópnum byggjast upp og geymast upplýsingar í hugmynda- og vandamálaskrám sem munu nýtast hópum núna sem og í framtíðnni. Fólk getur svo notað innbyggt póstkerfi og vegg til að vera í sambandi innan hópsins sem og setja upplýsingar út úr hópnum til að fá aðra til að taka þátt.

Með því að vinna svona saman fá menn stuðning og hjálp frá hvor öðrum, menn læra af þinni reynslu og þú af reynslu annarra. Sameiginlega komið  þið vonandi upp með betri lausnir handa börnunum ykkar. Við erum á endanum öll voðalega lík og glímum daglega við svipuð vandamál – afhverju ekki að biðja fólk um aðstoð og kannski aðstoða aðra í leiðinni!

“Vonandi mun vinkona mín núna nota síðuna til að setja upp hóp og vinna saman með foreldrum annarra lesblindra barna í skólanum”.
Ívar


Hugmyndir


mailsmall.jpgVið höfum öll hugmyndir, við fáum öll hugmyndir en alltof oft gerum við ekkert við þær og þær verða að engu og gleymast. Ef þú labbar um í götunni þar sem þú býrð og bannkaðir uppá hjá fólki og spyrðir það hvort það hafi einhverjar góðar hugmyndir er ég alveg viss um að svarið yrði já. Ef þú spyrðir næst hvort það hefði gert eitthvað með hugmyndina er ég nokkuð viss um að flestir myndu segja nei. Vandamálið með hugmyndir er að þær eru nákvæmlega það, það er auðveldar að hugsa hlutina en að framkvæma þá. Fólk hefur ekki tíma, það hefur ekki þekkingu, menntun eða reynslu til að koma hugmyndinni áfram.

Einmitt út af þessu fékk ég hugmyndina af Ideas-Shared. Mér fannst vanta stað þar sem fólk gæti skráð inn sínar hugmyndir fyrir sig og aðra. Það þarf ekki að vera að hugmyndinn verði að veruleika í dag eða á morgun þó þú skráir hana inn á ideas-shared en núna er hugmyndinn sýnileg, þú deildir henni og þarf af leiðandi eru meiri líkur á því að hún verði að veruleika. Núna eru möguleikar á því að einhver sem hefur það sem þig vantar, menntun, reynslu, þekkingu, fjármuni sjái hugmyndina og líki hún. Það fer svo eftir því hverning þú setur hana fram og hvað þig vantar sem ræður því sem gerist næst.

Hugmyndir geta verið litlar og stórar, þetta geta verið viðskiptahugmyndir eða samfélagshugmyndir. Hugmyndir fyrir þitt næsta nágrenni eða heiminn. Það getur verið að þig vanti pening til að framkvæma hugmyndina eða sért tilbúinn að deila ágóðanum af hugmyndinni verði hún að veruleika. Einnig getur verið að þú viljir einfaldlega gefa hugmyndina þína. Þú vilt að einhver taki hana upp og framkvæmi hana.

Internetið er magnað, það eru yfir 2 miljarðar manns tengdir við það.  Samfélagssíða eins og Facebook eru með 800 miljónir meðlima. Hugsið ykkur alla læknana, rafvirkjana, verkfræðingana, lögfræðingana, kennarana, smiðina sem er þarna inni, menntunin, þekkingin og reynslan sem sameinast í gegnun tölvuna er ótrúleg.  Vandamálið með Facebook er að mikið að því góða efni sem er þar inni týnist innan um alls konar síður svo gott efni sem og að síðan var ekki byggð til að deila, skrá og geyma hugmyndir, vandamál og lausnir.

Mér fannst að það hlyti að vera pláss fyrir síðu eins og Ideas-Shared sem nýtti sér samfélagsformið á netinu betur til að skapa eitthvað og láta gott af sér leiða og láta hlutina gerast. Ef þú ert með hugmynd eða vandamál, ef þú villt vinna saman með öðru fólki, ef þú villt deila þekkingu, menntun og reynslu þá væri Ideas-Shared staður sem þú gætir leitað til og notað.

Ideas-Shared er að taka sín fyrstu skref, við erum búnir að vera að þróa og hanna síðuna í 2 ár. Fyrst núna eru við í aðstöðu til að segja fólki frá henni og því sem við höfum verið að gera. Við erum fámennur hópur (sem fer þó stækkandi) sem stendur af henni, við komum frá Íslandi, Englandi og Kúbu og með því að nýta okkur netið og hugmyndafræði síðunnar höfum við náð að búa til samskiptasíðu fyrir einungis brot af þeim kostnaði sem annars hefði af hlotist.

Síðan eins og hún lítur út núna er ekki endanlegt form hennar og það er mikið verk ennþá eftir í henni, en hún virkar og gerir það sem við stefndum af í upphafi - þróun síðunar mun svo í framtíðinni taka mið að því sem meðlimir okkar segja, svo endilega notið síðuna, deilið ykkar hugmyndum og látið okkur vita hvað við getum gert til að gera síðuna betri. 


Um bloggið

Ívar Ingimarsson

Höfundur

Ívar Ingimarsson
Ívar Ingimarsson

Ég er fæddur og uppalinn á Stöðvarfirði og er ég einn stofnenda ideas-shared.com sem er samskiptasíða byggð í kringum, hugmyndir, vandamál og undirskriftalista. Síðan er fyrir alla þá sem vilja vinna saman og nýta þá sameiginlegu, menntun, reynslu og þekkingu sem tengist netinu til að láta hlutina gerast.

 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...chment_aspx
  • Einstein
  • Góð hugmynd
  • www.ideas-shared.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband